Ásdís Sif Gunnarsdóttir (f. 1976) býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BFA gráðu frá School of Visual Arts í New York árið 2000 og MA gráðu frá University of California, Los Angeles, þar sem hún lagði áherslu á vídeó- og gjörningalist. Hún hefur sýnt gjörninga og vídeóverk víða innanlands og erlendis undanfarin ár og tekið þátt í fjölda samsýninga ásamt því að vinna vídeóverk gegnum netið.